Bloggfærslur mánaðarins, júní 2014

Skólaárið 2013-2014

Íslenska
Í íslensku lærði ég um íslenska málfræði. Í ferilritun gerði ég tvær sögur, mér fannst sagan mjög góð en mér fannst mjög leiðinlegt að búa hana til. Svo áttum við að vinna í bók sem hét Málrækt og svo í annarri bók sem hét Mál í mótun. Í yndislestri las ég margar bækur, bækurnar voru ekki skemmtilegar.
Enska
Ég lærði að að skrifa á ensku mér fannst það ekki mjög erfitt. Við vorum að vinna í bók sem að hét Hickory, Dickory, Dock. Mér finnst hún ágæt, við áttum að lita of mikið en samt skemmtileg. Við gerðum My favorite animal verkefni og My best friend mér fannst það mjög skemmtilegt ég er góður í ensku þess vegna finnst mér það skemmtilegt.
Stærðfræði
Í stærðfræði lærði ég um gráður og plús,mínus,sinnum sem mér finnst ekkert rosalega skemmtilegt. Eina sem mér finnst skemmtilegt er Kefrenc.

Íþróttir/Sund/Útileikir/Tónmennt
Í íþróttum gerðum við armbeygjur, magaæfingar og margt fleira. Sund er mjög leiðinlegt, en samt við þurfum að fara í það. Í sund gerðum við skólabaksund, skriðsund og baksund og meira. Í útileikjum fórum við í fótbolta, ég man ekki fleira. En samt það var skemmtilegast. í Tónmennt vorum við að læra um lög og gerðum verkefni. Ég var með Sijan,Snær og Ísar að gera verkefnið.

Hvalir
Í hvalaverkefninu lærðum við um hvali. Ég lærði að það voru tvær tegundir af hvölum sem eru skíðishvali og tannhvali. Tannhvalir eru með tennur en skíðishvalir með skíði.

Egla
Í Eglu lærðum við um Egil Skallagrímsson þegar hann var lítill og líka um víkinga. Við gerðum verkefni um Eglu sem að var ekki mjög skemmtileg en samt ágæt.
Smíði
Í smíði gerði ég hornhillu og spjót mér fannst það skemmtilegt.

Boot Camp
Boot Camp var það besta við vorum að boxa og allt sem er skemmtilegt nýjar armbeygjur, magaæfinga og eitthvað annað. En Boot Camp var það besta.


Höfundur

Agon Zogaj
Agon Zogaj
Hæ ég heiti Agon :):):):):):D

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband